Stuðbandalagið

Stuðbandalagið

25.12.2007 21:48:34 / sissi

Þinghamar Varmalandi

Þá er komið að því Árlegt Ball í Varmalandi Föstudagskvöldið 28 Des.

Mætum öll í jólastemmara. Munið Nafnskírteinin 16 ára aldurstakmark.


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 15:25:02 / sissi

Hæ eruð þið ekki orðin þreytt

Nei glætan....8)

Svakalega gott sumar búið að vera og við í Stuðbandalaginu búnir að vera spila út um allt Td: í dölunum á hestamannaballi, á Borgfirðingahátíð , á Kringlukránni og svo subbaði trommarinn með Vítamín eina helgina. Þannig að við erum búnir að hafa mikið að gera. Nú ætlar Stuðbandalagið að fara í smá frí og byrja svo ballið aftur á Kringlukránni 10-11 ágúst. Svo er aldrei að vita nema við dúkkum upp á nýjum stöðum á komandi hausti. Þangað til hafið þið það gott og kvittið fyrir komu ykkar á síðuna okkar. BLEBLEBLEBLE...8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 11:03:39 / sissi

Kringlukráin Kringlukráin.

Þá er komið að því að Stuðbandalagið spilar á
Kringlukránni næstu helgi, Auðvitað mætum við öll
því við vitum að það er alltaf stuð þar sem Stuðbandalagið spilar.
Þangað til næst bleble.... 

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 18:08:10 / sissi

Á Döfinni með Stuðbandalaginu.

Já þá er helginni lokið og sú næsta að taka við. Venus var frábær eins og venjulega, en Indriði var fjarri góðu gamni þannig að við vorum einum leikmanni færri, en það kom nú ekki að sök! eða fannst ykkur það????

Stuðbandalagið tekur sér nú tveggja helga frí og spilar svo á Kringlukránni síðustu helgina í Maí.

Þangað til næst gangið hægt um gleðinnar dyr og sjáumst svo á Kringlukránni.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 13:40:00 / sissi

Mótel Venus Mótel Venus Mótel Venus

Stuðbandalagið í klikkuðu stuði á

Mótel Venus

Laugardaginn 5. Maí.

1,500- kall inn

18. Ára aldurstakmark

Mætum öll í stuðið...

                                                                                          Nefndin.


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 18:18:46 / sissi

Gaman Gaman.

Þvílík snilld á Akureyri um helgina,

það var allt brjálað í Vélsmiðjunni um helgina þegar Stuðbandalagið kom og tróð upp "eins og stóð réttilega í DV" en ég ætla ekki að hafa það eftir kaupið bara laugardagsblaðið. Stuðbandalagið mun koma fljótlega aftur á Akureyri og gera allt vitlaust eins og venjulega. en næstu helgi ætlum við í Stuðbandalaginu að troða upp á Kringlukránni og er búist við að hálf Reykjavík ætli að mæta þannig að unm að gera að mæta snemma því það verður væntanlega hleypt inn í hollum.

                                                                                                   Þangað til næst bleble..


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 10:20:09 / sissi

Dægurlagakeppni.

Jæja þá er dægurlagakeppnin búin og tókst nú bara þokkalega miðað við að hún er haldin á virkum degi. Úrslit fóru þannig:

1: sæti. Mjúkar hendur, eftir Írisi Guðbjartsdóttur.

2: sæti. Syngdu með, eftir Vigni Helga Sigurþórsson

3: sæti: Vor og Vaknandi líf, eftir Indriða Jósafatsson.

Bjartasta vonin var: Eva Margrét Eiríksdóttir 

sem söng "Syngdu með" eftir Vigni Helga Sigurþórsson. 

Við í Stuðbandalaginu óskum höfundum og flytjendum að sjálfsögðu innilega til hamingju með árangurinn í keppninni.

En nú um helgina mun Stuðbandalagið vera á Akureyri Bæði föstudag og laugardag á Vélsmiðjunni sem er jú flottasti skemmtistaðurinn á Akureyri. sjáumst hress og kát á Vélsmiðjunni.

 

Stuðbandalagið.


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 17:49:32 / sissi

Vélsmiðjan Akureyri.

Næstu helgi mun Stuðbandalagið Spila á Vélsmiðjunni á Akureyri. En þarna hefur alltaf verið svakalegt stuð þegar við höfum mætt á Eyrina.

Akureyringar sjáumst hress um næstu helgi.

Stuðbandalagið.


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 17:44:37 / sissi

Dægurlagasamkeppni í Logalandi.

Síðasta vetrardag verður haldin Dægurlagasamkeppni í Logalandi sem U.M.F.R. hefur veg og vanda að eins og síðastliðin ár.
húsið opnar kl:21:00. og hefst keppnin kl:21:30. Við hvetjum alla til að koma og sjá og hlusta á þessa frábæru skemmtun sem fyrir löngu hefur fest sig í sessi hér í Borgarfirði. Þegar keppni lýkur mun Stuðbandalagiðhalda uppi Dansleik af sinni alkunnu snilld sem mun ekki ljúka fyrr en undir morgun.

Sjáumst hress í Logalandi á Miðvikudasgskvöld.

                                                                                                                                Nefndin.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 15:46:40 / sissi

Logaland Logaland

Geggjað stuð var í gærkvöldi í Logalandi á árlega Stuðbandalagsballinu en Bandalagið hefur verið með dansleiki síðastliðin ár með góðum árangri og sífelldri aukningu frá ári til árs.

Stuðbandalagið er nú að undirbúa Dægurlagasamkeppni sem haldin verður síðasta vetrardag í Logalandi en þar munu etja saman 9 lög víðsvegar af landinu.

Láttu sjá þig í Logalandi síðasta vetrardag á Keppninni og að sjálfsögðu ball á eftir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 15:01:17 / sissi

Lindártunga.

Jæja þá er boðskemmtunin hjá þeim í Kolbeinstaðahreppnum afstaðin og bæði menn og konur að jafna sig á helginni, en þarna var þrusustuð eins og hreppurum einum er lagið.

Við í Stuðbandalaginu þökkum fyrir okkur það var gaman að koma í Lindártungu og ekki skemmdi maturinn fyrir þrusugóður að vanda.

En mig langar til að minna á næsta föstudag í logalandi sjáumst þar hress og kát.

SK. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 18:09:55 / sissi

Sveitaball. Sveitaball. Sveitaball.

Þá er komið að því að Stuðbandalagið haldi Sveitaball í Logalandi á föstudaginn Langa
frá 24:00 - 04:00.
16. ára aldurstakmark
2000 kall inn.
Hljómsveitin Hugo spilar í pásu.


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 15:41:17 / sissi

Helgin.... Í bænum....

Það var gaman að koma til R-víkur og spila fyrir Gustinn mikið fjör og svaka gaman, annars væri ég líklega ekki að blogga um þetta þá myndi maður þegja. Næst á dagskrá er stór ball í Lyngbrekku að mér skilst bara gaman að koma þangað því við höfum ekki spilað þar lengi. Þannig að það er mikið umleikis hjá bandinu á komandi helgum og virkum dögum í æfingum fyrir Dægurlagakeppni ungmannafélags reykdæla.. '8|'); En þangað til næst bleble...

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 15:11:08 / sissi

Skoðanakönnun.

Jæja þá er þessi skoðanakönnun búin að vera uppi nógu lengi og ég held ég fari að henda inn vinningslaginu sem er Fallinn með hljómsveitinni Tívolí. En lagið er mikið breytt í flutningi Stuðbandalagsins og tekið upp af okkur sjálfum í Stúdíó stuði í Klettinum, lagið er væntanlegt á netið von bráðar.. '8|' Sissi.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 10:52:07 / sissi

Gott Ball

Það var mjög gott ball á venus um síðustu helgi fullt af fólki sem var farið að þyrsta í Ball.

á næstunni verður Stuðbandalagið að spila í Logalandi á föstudaginn langa frá 24:00 - 04:00 

en vonandi fáum við óvænta gesti á það ball. annað á döfinni er félagsheimili gusts í Kópavogi, Kringlukráin,  vélsmiðjan Akureyri og fleir.

einnig sér Stuðbandalagið um tónlistarflutning á Dægurlaga keppni Reykdælinga í Logalandi síðasta vetrardag og dansleik á eftir. sjáumst hress á Föstudaginn langa bleble.... 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
Klukkan
Klukkan
Dagsetning
19. maí 2012
Böndin